Í fréttablaðinu í dag er auglýsing um fartölvur, ein af mörgum. Þar hefur auglýsingastofan þurft að finna eitthvað gott við alla hluti tölvunnar. Þar er kynntur Intel Celeron örgjörvi og hann sagður hljóðlátur!
Hann gefur semsagt frá sér hljóð? Það er líklega fyrsti örgjörvinn sem gefur frá sér hljóð svo einhverju nemi.
Örgjörvaviftur eru hinsvegar hvimleiðir (eða ætti ég að segja hvinleiðir) hlutir...
Alltaf er maður að læra eitthvað nýtt.
31.8.06
Lundaveisla
Úff!
Þvílík veisla í gærkvöldi. Við tengdamóðir mín snerum bökum saman og útbjuggum heljarinnar partí fyrir Klaus og Ulriku, þýska vini þeirra, auk okkar fjölskyldna. Lundabringur voru léttsteiktar og grillaðar í ofni með beikoni og loks borðaðar með nýjum kartöflum, gráðostasósu og salati.
Einungis sjö lundar voru til svo við bættum einni gæs í pakkann.
Herrlich!

30.8.06
Sannspár?
Spáði fyrir nokkrum vikum að Magni yrði sjötti síðastur til að falla út. Nú er að vita hvort ég er sannspár. Hef fylgst með reglulega á http://blog.central.is/rssn. Þar áttu að koma inn spoilerar í kvöld. Ekkert komið enn.
Denial of service
Nett DOS árás í gangi á MSN þjónana. Maður hefði haldið að örmjúkt háeff réði við nokkrar milljónir atkvæða í rokkstar í einu...
Kvöldvakan gekk eins og í sögu. Krakkarnir eru ljúfir sem lömb. Nemendafélagið bauð upp á snakk og gos og allir hjálpuðust að við tiltekt. Næs.

29.8.06
Fréttatilkynning
Nemendur í Menntaskólanum á Egilsstöðum ætla að heiðra fyrrverandi nemanda skólans í nótt með kvöldvöku þar sem nemendur ætla að horfa á Rockstar Supernova saman og kjósa í gríð og erg að þætti loknum. Nánari upplýsingar má fá hjá Hólmfríði Rut Einarsdóttur 8455688 eða Guðmundi Jónssyni 8485671
Skólinn mun gefa frí í fyrsta tíma í fyrramálið til að bæta nemendum upp svefnmissinn.

28.8.06
My! Very educated morons just screwed up numerous planetariums
Í stjörnufræðitímum hef ég oft þulið setninguna My very educated mother just served us nine pizzas, fræga setningu til að muna röð reikistjarnanna. Nú, þar sem búið er að klippa Plútó úr flokki reikistjarna þarf að klippa hana úr setningunni.
Hjón á Manhattan tóku sig til og héldu samkeppni um nýja setningu til að muna röðina. Þau leyfðu fólki reyndar að ráða hvort nýja setningin innihéldi Plútó, eða jafnvel Karon, Ceres og hvaðhannnúheitirnýjahnöttinn. Fyrirsögn þessa bloggs er vinningstillagan. Höfundur er Josh Mishell. Nánari upplýsingar má finna hér.
Takk pallih.

24.8.06
Magnað
Skyldu umrædd fáein atkvæði sem munar á rokkstjörnum í RSSN vera svona fáein?
Ég fékk þá hugmynd við matarborðið í kvöld að stinga upp á því að gefa frí í fyrsta tíma á fimmtudagsmorguninn í næstu viku og hafa kvöldvöku í skólanum á miðvikudagskvöldið með massívum kosningum í lok tónleikaþáttarins.

Þátttakandi í einelti
Í þau sex skipti sem ég hef kennt stjörnufræðiáfanga í ME hef ég aldrei legið á þeirri skoðun minni að Plútó eigi ekki heima í röð reikistjarna sólkerfisins. Til þess sé hann of lítill, braut hans of óregluleg og þar að auki nokkrir jafnokar hans sem hafa ekki fengið þennan virðingarsess í hugum okkar.
Það er ekki laust við að ég hafi sektarkennd...

22.8.06
Aftur horfandi á Stundina okkar
Ég veit, ég er vaxinn upp úr stundinni okkar. Fyrir nokk löngu meira að segja. En ég er samt áhugamaður um gott barnaefni, hvort heldur það eru bækur, bíómyndir, tölvuleikir eða sjónvarpsþættir.
Dætur mínar horfa þó ennþá á stöku Stund, mér oft til nokkurrar skapraunar. Mér hefur nefnilega tekist að láta umrædda þætti fara í mínar fínustu taugar síðustu ár. Þátturinn hefur byggst upp á frekjulátum, hneykslun og yfirgangi annars leikarans og hræðslu, skömmustu, blygðun og jafnvel sektarkennd hins.
En nú verður breyting á því hann þeir Varríus, Sævar, Ármann og Snæbjörn hugleiksmenn, höfundar margra leikhúsperla og almennra skemmtilegheita hafa nú tekið við.
Jibbí!

19.8.06
Skottúr norður
Fórum á Ólafsfjörð í gær. Rukum af stað hálffjögur og með ágætu matarstoppi á Akureyri (hvar við átum neðanjarðarlestarbáta í fyrsta skipti) náðum við Mozarttónleikum á Berjadögum. Alveg brillíjant tónleikar.
Síðan áttum við gott kvöld, nótt og morgun með mömmu og pabba og Áslaugu og Halldóri í Hólkoti. Brunuðum svo heim því ég var orðinn svo stressaður. Stundaskráin hefur aldrei áður verið í slíku lamasessi svona stuttu fyrir upphaf annarinnar. Þetta minnir mig á sum jóla"frí" sem ég hef átt. Er allavega mættur í vinnuna.
Framundan nokkrir dagar nánast án fjölskyldunnar.
Á nýju skrifstofunni.

17.8.06
Skrifstofustarf
Fyrir rúmum átta árum sótti ég um dæmigert skrifstofustarf.
Nú hef ég loks fengið skrifstofuna sem átti að fylgja starfinu.
Þessi tuttuguogeinnargráðu, sólríki síðsumardagur, sem er í ofanálag tíundi brúðkaupsafmælisdagur okkar Helgu hefur farið í sveitta skrifborðs-, tölvu- og möppuflutninga.
Svo neyðist ég líklega til að hanga í vinnunni til sjö út af stöðuprófi sem ég hélt að ætti að vera búið kl sex.
En, heng samt á minni eigins skrifstofu...

15.8.06
Afhommun
Á hverju skyldi svona námskeið um afhommun/lessun byggja?
Sé það einhvernveginn ekki alveg fyrir mér.
Kemur "máttur bænarinnar" þessu við?
Þylja þeir, "ég er ekki hommi, ég er ekki hommi....." endalaust?
Eru þeir látnir horfa á lesbískt klám (og þær þá á hommískt)?
Ég var bara að pæla.
Er ekki vandamálið að ennþá er sú skoðun að samkynhneigð er enn talin "vandamál" meðal hóps íslendinga. Það er ekki enn sjálfsagt mál að vera samkynhneigður. Ýtir auglýsingin í mogganum ekki einfaldlega undir vandamálið? Stuðlar að sektarkennd fólks sem þorir ekki að koma út úr skápnum? Auglýsingin er að því leyti sjálfbær. Býr til "viðskiptavinina".
Siðlaust?
Já.

9.8.06
Rokkið
Ég viðurkenni það. Ég glápi á rokkstar súpenóva.
Eingöngu vegna áhuga míns á sprengistjörnum. Ég kenni jú stjörnufræðiáfanga...
Annars eigum við í ME svolítið í honum Magna. Hann vann Barkann, söngkeppni skólans tvisvar í lok síðustu aldar.
Mér hefur fundist kappinn standa sig eins og hetja í þessum þáttum. Ég spái því að hann komist í topp sex. Þ.e. hann verður sjötti síðastur til að falla út. Toby, Gill, Zayra, og Patrice munu falla út á undan honum. Dilana, Lukas og Ryan verða líklega þrjú í lokin. Það er spurning hvort Josh og Storm falla út á undan Magna. Storm söng We are the Champions afar illa í þessum þætti. Ég syng það betur hás í falsettu maður..
Í kvöld söng Magni eiginlega betur en nokkurntíma áður. Engin hætta á að hann falli út.
Annars óska ég honum bara til hamingju með að standa sig vel. Og að lokum mun ég óska honum til hamingju með að hafa ekki orðið söngvari í þessari fremur óspennandi hljómsveit. Tónlistin sem maður hefur heyrt með henni er nú ekki upp á marga fiska.

5.8.06
4.8.06
Loksins hálendið norðan jökla
Góð ferð á hálendið. Kom í fyrsta sinn í Kverkfjöll, Öskju, Drekagil, Hvannalindir og Herðubreiðarlindir ásamt fögru umhverfinu þar á milli. Dúndur útilega. Frábært veður inni við Sigurðarskála í Kverkfjöllum, gengum á Virkisfell, fórum inn að íshellinum, gengum inn í Drekagil, að Víti og Öskjuvatni og um Herðubreiðarlindir. Veðurspáin rættist að mestu leyti, full hvasst í Herðubreiðarlindum í gærkvöldi og nótt. Rigndi smávegis en það var ekki kalt.

Gráni stóð sig með prýði, óð yfir árnar eins og hann hefði aldrei gert annað. Ég hef á tilfinningunni að honum líði bara prýðilega á landsbyggðinni. Brotnaði ekki eitt drifskaft, vatnskassinn hélt, eyðslan var meira að segja minni en ég bjóst við.
Þetta er náttúrulega ekki síst ökumanninum að þakka.

Subscribe to:
Posts (Atom)